þriðjudagur, janúar 02, 2007

Tilkynning

Hér með tilkynnist það að í næstu færslu verður árið 2006 gert upp og farið yfir hvað mér þótti markverðast. Vafalaust verða einhverjir árslistar birtir eins og í öðrum fjölmiðlum, svona besta hitt og þetta listar og síðan virðast vera blikur á lofti með spádóma um hvað þetta ár kemur til með að bera í skauti sínu.

En núna ætla ég hins vegar ekki að segja neitt annað en að mér fannst áramótaskaupið framúrskarandi. Bæði hárbeitt og drepfyndið. Ef einhver segir mér að sér hafi ekki þótt skaupið neitt fyndið stend ég mig að því að horfa á viðkomandi með meðaumkun, því mér er það óskiljanlegt að einhverjum hafi ekki þótt þetta fyndið. Skil það ekki.
Nóg um það, farinn í vinnuna oig síðan í jólaboð hjá Ranna frænda í kvöld.

0 comments: