

Hér eru tvær myndir af Kolbeini að gera það sem honum finnst allra skemmtilegast af öllu um þessar mundir. Þ.e.a.s. að dansa í hoppirólunni.
Annars höldum við að það séu að koma hjá honum tennur. Hann er allavega frekar tæpur og það er stutt í væl, þó það sé nú reyndar allataf stutt í brosið líka, en eitthvað er a.m.k. að gerast.
Við erum byrjuð að pakka saman dótinu okkar, enda ekki nema hálfur mánuður þangað til við þurfum að skila af okkur. Það eru nú meiri ósköpin sem hægt er að safna sér af dóti! Við erum rétt að byrja en það eru strax farnir að myndast konfliktar með hverju má henda og hverju ekki. Mömmunni finnst að alger óþarfi að halda upp á eitthvað se mér finnst griðarlega nauðsynlegt að eiga og ég skil ekki hvers vegna þarf áð eiga allskonar dót sem henni finnst lífsnauðsynlegt. Samt erum vi ðbæði búin að samþykkja að nú verði öllu sem ekki er nauðsynlegt að flytja með sér miskunnarlaust hent.
Skrítið hvað maður er skrítinn...
2 comments:
Travolta flottur í rólunni ;)
Hann á svosum ekki langt að sækja þetta Óli minn, man eins og það hafi gerst í gær, "Þú og Ég" og Kringlukráin. Hægt að snúa útúr þessu. Svo eru nú danshæfileikarnir miklir hjá Fossaraættinni, umtalað á Suðurlandi öllu!
Ég bráðna alveg þegar ég sé svona sætar myndir...
Kva! Ólafur og frænkan kva! á Kringlukránni?! ...varð að fá að snúa útúr þessu... Andri er að stofna hljómsveit, ætlaði að bjóða KS að vera á bassa eða syngja en nú sér hann hvar hæfileikarnir liggja og býður unga herranum hér með starf gógó-dansarans!
Um dótið: Henda miskunarlaust, af því leiðir dásamlegt feng-shui - ég tala af reynslu.
Sendu inn athugasemd