jæja þá er komið að því að efna loforð sem gefið var hér að neðan. Árið 2006 var mjög viðburðaríkt hjá Ljósvellingum, eins og frægt er orðið. Eitthvað er ég þó andlaus og á erftt með að útbúa best of lista. Ég ætla að reyna að fara í gegnum árið mánuð fyrir mánuuð og athuga hvort ég man eitthvað markvert. Hér er það!
Janúar:
Man ekki eftir neinu merkilegu sem gerðist þá minnir þó að við höfum farið til Kaupmannahafnar í janúar og haft það afar gott. Borðað á The paul og slæpst um miðbæinn. Gæti þó hafa verið í öðrum mánuði.
Febrúar:
Vafalaust gerðist eitthvað markvert í Febrúar. Mér finnst til dæmis líklegt að við höfum farið í sónar þá og orðið voða væmin og farið um bæinn að sýna öllum útprentun úr tölvu sem átti að vera mynd af nýju barni. Ef mig misminnir ekki lét fólk að því fyndist þetta jafnmerkilegt og okkur, takk fyrir það.
Mars
Vá hvað maður er skrítinn það er ekki eins og það séu mörg ár sem maður er að reyna að muna aftur í tímann. Ég get ómögulega munað neitt merkilegt sem gerðist í mars. Voru ekki Páskar í mars? Jú ætli það ekki. Ef það voru páskar þá fórum við í heimsókn í Skorradal á Páskum, ef mig misminnir ekki. Það var notalegt að vanda.
Apríl:
Ef páskar voru í apríl þá skuluð þið nýta setninguna um páska hér. annars var apríl frekar rólegur mánuður hjá okkur, nema ég sé að gleyma einhverju merkilegu. Kom Heiðrún systir í apríl?
Mai:
Þegar hér ver komið við sögu var farið að sjá dáldið á minni konu. Kolbeinn farinn að hreyfa sig (var reyndar eki byrjaður að heita Kolbeinn)
Júní:
Ég átti afmæli, ég man það. Það var þjóðhátíð, ég man það líka. Man ekkert meira...
Júlí:
Já nú fer loksins að draga til tíðinda. Í júli fæddist Kolbeinn Skúli þann 24. nánar tiltekið. Hann var eldsnöggur á vetvang. Gerði fyrst vart við sig upp úr kl 3 um eftirmiðdag og leit dagsins ljós í fyrsta sinn kl 18:07. Síðan tóku við gengdarlausar hamingjustundir sem standa enn.
Ágúst:
Tvennt markverðast, Náunginn sem hét ekki neitt fór alltíeinu að heita Kolbeinn Skúli. Faðir drengsins fór í stutta veiðiferð og kom til baka með maríulax í farteskinu. Síðan leit þessi vefsíða dagsins ljós en það er nú svosem ekkert mjög merkilegt. Í þessum mánuði fórum við dáldið í göngutúra með barnavagn, í svokallaða monttúra til að sýna Kolbeininn þeim sem vildu sjá. Man líka að við fórum í skorradal með drenginn, það var notalegt að vanda.
September:
Ég þurfti að snúa aftur til vinnu með miklum semingi, Ég man að það var dáldið erfitt og mér fannst eins og ég hafi verið marga mánuði í burtu. Bíddu var það kannski í þessum mánuði sem maríulaxinn kom? Já það gæti verið, ef svo er þá var það markvert í þessum mánuði.
Október:
Af einhverjum ástæðum er október í einhverri móðu, dáldið eins og mars og apríl. Fór til Kaupmannahafnar með vinnunni og borðaði og drakk einhver ósköp á tveim dögum. Kolbeinn hélt sínu striki sem hann heldur enn svosem.
Nóvember:
Missti af afmæli Heiðrúnar systur. Kolbeinn byrjaði í á sundnámskeiði en þurfti síðan að hætta vegna þess að hann fékk fyrsta kvefið sitt. Við mamman fórum í fyrsta sinn út frá honum að borða og hann fékk pössun í fyrsta sinn. Man að við komum afar seint heim en vorum glöð í bragði, takk fyrir að passa Sunneva og afsakaðu hvað við vorum lengi...
Desember:
Kolbeinn fékk graut í fyrsta sinn og líkaði vel. Jólin komu með fullt af pökkum og mat. Ég vannn eins og skepna en þó gafst tími til að selja Ljósvallagötuna og kaupa í Mávahlíð. Nú er bara að fara að pakka öllu dótinu okkar í kassa því við þurfum að flytja út í febrúar. Flytjum fyrst um sinn í Krosshamra, það verður örugglega notalegt, að vanda.
Þetta er semsagt 2006 í hnotskurn. Við fyrstyu sýn einkennist árið af minnisleysi en ef lesið er milli línanna þá má finna margt markvert og skemmtilegt. Ég kvíði dáldið 2007 því það á eftir að vera erfittt að toppa 2006 með öllum þeim góðu hlutum sem gerðust þá. Það er semsagt með trega sem 2006 er kvatt og þrátt fyrir smá kvíðahnút þá er mjög bjart yfir 2007.
Gleðilegt ár öll og kærar þakkir fyrir það gamla!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
ohhh Óli við fórum til Köben í maí - þegar ég var búin í skólanum hmmm. Í maí fórum við í brúðkaup hjá Snorra og Ísól. Fórum líka á Búðir í júlí, fórum í Húsafell í sumarbústað í febrúar-vorum þar að skoða óléttubók og þú fórst í pottinn, í ca 2 sek, frekar markvert finnst mér. Fleira á sennilega eftir að rifjast upp.
Jaaaá alveg rétt...
Brjóstaþoka kallast þetta Óli minn, kannast líka við þetta og því geri ég ekki tilraun til að gera annál fyrir árið 2006 :)
GS tókst að plata mömmu sína upp úr skónum núna áðan, sagði að það væri kominn morgunn og að hann þyrfti nauðsynlega að komast fram og leika sér oggulítið. Klukkan var 5.30. Byrjar ekki vel - hvernig verður þetta þegar hann verður únglíngur? Muna að hafa klukku á náttborðinu framvegis....
feginn er ég að brjóstaþokan þjakaði mig aldrei svona eins og óla.
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla kveðja frá Snorra og kó
Ég ætla samt að kvarta örlítið... nei, mikið:
Ég vil fleiri myndir af litla frænda og þær margar!
Það hljóta fleiri að taka undir þetta með mér!
Kv.
Heimtufreka frænkan í sveitinni
Ég vissi ekki að brjóstaþoka legðist á "man boobs" það er þá ágætt að vera komin með skýringu á þessu minnisleysi.
Kannastu ekki við Kuweit syndrom? Heitir það það ekki? Þú ert kannski með svoleiðis! Var að horfa á seríu nr. 2 af House og er langt komin með doktorsgráðuna!
Skemmtilegur annáll! Eftir að ég las þetta fór ég að rifja upp atburði eftir mánuðum og ekki séns að ég gæti staðsett atburði við mánuði nema að sjálfsögðu fæðingu erfingjans;o) Mikið er ég sammála þér með árið 2006, dásamlegt ár.
Sendu inn athugasemd