Guðmundur Steingrímssonskrifar frábæran pistil um svipað efni og færslan mín hér fyrir neðan.
Annars er allt gott. Í gær skrifuðum við undir kaupsamning, þannig að nú erum við stoltir eigendur af efri hæðinni í Mávahlíð 44. Jólaundirbúningur er nú frekar rólegur hjá okkur. Við erum ekki að stressa okkur mikið að "ná að gera allt" fyrir jólin. Jú vissulega erum vi búin að baka 2 stampa fulla af smákökum, gera rauðkál, kaupa allar jólagjafir og skreyta jólatréð. Í gærkvöldi sauð ég meira að segja hangiket.Þannig að deginum verður mest eytt í rólegheit. Jú jú það þarf að skúra og taka til en þega rþað er búið getum við farið í bæinn og sötrað jólaglögg. Mér var meira að segja boðið í partí í fornbókabúðina hann Braga, kannski maður bara skelli sér þangað.
Annars óska ég landsmönnum nær og fjær gleðilegrar þorláksmessu og farsældar á komandi jólum
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
hvernig bragðast raðkál? og þarf það að vera í einhverri ákveðinni röð, eða má það vera random??
Hhaha, Raðkál það er fyndin prentvilla, en nú er ég búinn að laga það...
Hvað verður þá um Ljósvellingasögu ?
Bara lögð niður eða breytist hausinn í Mávahlíðarbagur ???
Bara smá pæling svona kortér í jól...
ætlaði að skrifa Mávahlíðarbragur en ekki bagur hér fyrir ofan !!
óli s
Bara tvær spurningar:
1.Skilgreina "frekar rólegt"
2. Útskýra " Deginum mest eytt í rólegheit" fyrir utan róleigheit hvað verður gert!
Já Mávahliðarbragur er ekki alvitlaust, Eða kannski Jónatan Livingstone Mávahlíð...
Til að svara spurningunum:
1. Frekar rólegt= Ekki leggja parket eða setja upp nýjar gardínur, ekki þrífa alla skápa að innan, ekki smíða sjálfur jólatré eða föndra fullt af jólaskrauti. Þannig rólegt. Að gera bara fyrir jólin eins og maður hefur tíma til. Ekki grafa sig í eitthvað stress eða fylla tímann fyrir jól af verkefnum sem maður ræður ekki almennilega við.
2. Chillað
Gleðileg jól og takk fyrir samveruna á árinu.
Bryndís Ísfold og Konráð Bjartur
óli s
góður
Sendu inn athugasemd